Félagið Ísland-Palestína mótmælir því að ljósmynd, sem tekin var af Saraa Almasri á mótmælum félagsins gegn þjóðarmorði, sé notuð við frétt Morgunblaðsins 5. nóvember sl. um alls óskylt málefni.
Félagið mótmælir að myndbirtingin virðist hafa þann tilgang að varpa neikvæðu ljósi á tiltekinn hóp fólks, nánar tiltekið Palestínumenn og konur, í tengslum við umfjöllum um fólk á fjárhagsaðstoð hjá Reykjavíkurborg.
Félagið gerir einnig athugasemd við þá almennu tilraun sumra fjölmiðla að reyna að skapa neikvæð hugrenningatengsl hjá lesendum þar sem látið er í það skína að Palestínufólk sé baggi á samfélaginu og til ófriðar m.a. með þátttöku sinni í mótmælum sem eru mannréttindi allra.
Þrátt fyrir að myndin hafi verið fjarlægð úr rafrænni frétt Morgunblaðsins eftir hávær mótmæli þá er hún í prentaðri útgáfu blaðsins sem er dreift ókeypis til allar landsmanna á fimmtudögum.
Í ljósi þessa krefst félagið þess að Morgunblaðið biðji Saraa Almasri opinberlega afsökunar.
