Samstöðu- og styrktartónleikar fyrir Palestínu

Félagið Ísland-Palestína boðar til samstöðu- og styrktartónleika fyrir Palestínu í Gamla Bíó fimmtudaginn 16. nóvember.

Fram koma:
  • Páll Óskar
  • Úlfur Úlur
  • Cyber
  • JDFR

Kynnir er Þuríður Blær

Dagskrá

19:00 – Húsið opnar
19:45 – Stuttmynd frá Amnesty International um aðskilnaðarstefnu Ísraels
20:00 – Tónleikadagskrá hefst

Miðaverð er 2.500 krónur.
Miða er hægt að kaupa á Tix.is og við hurð.

Allur ágóði rennur í neyðarsöfnun handa íbúum Gaza

Varningur til styrktar Palestínu verður til sölu á tónleikunum, s.s. bolir, taupokar og Keffiyeh treflar.

Þeir sem vilja styðja málstaðinn en komast ekki á tónleikana er bent á að leggja inn á reikning neyðarsöfnunar félagsins:

Reikningsnúmer: 542-26-6990
Kennitala. 520188-1349
Skýring „tonleikar“

Við þökkum listamönnunum, Gamla Bíói og öllum þeim sem lagt hafa hendur á plóg kærlega fyrir stuðninginn.

Fyrir þá sem vilja hjálpa til við að dreifa orðinu eru hér myndir fyrir samfélagsmiðla: https://bit.ly/FIP_2023

Brjótum niður múrinn – Frjáls Palestína!

Sjáumst á fimmtudagskvöld.

Scroll to Top