Meira en 6 mánuðir eru nú liðnir frá því að árásarstríð Ísraela á Gaza hófst í október 2023, og enn virðist vopnahlé eða friður ekki í neinu sjónmáli, og ekki vera forgangsatriði hjá ríkisstjórn Íslands, sem enn hefur ekki fordæmt hernað og stríðsglæpi Ísraela á Gasa. Af því tilefni boðaði Félagið Ísland-Palestína til útifundar á Austurvelli, en að fundinum stóðu einnig Menningar-og friðarsamtök íslenskra kvenna og Samtök Hernaðarandstæðinga.
Fundarstjóri var Árni Pétur Guðjónsson leikari. Ræðufólk var Gunnar Hersveinn heimspekingur, Lea María Lemarquis fyrir hönd Menningar og friðarsamtaka íslenskra kvenna, Guttormur Þorsteinsson frá Samtökum hernaðarandstæðinga og Manar Azzeh frá Palestínu. Öll gerðu þau frið og réttlæti að umfjöllunarefni í
ræðum sínum.
Í ræðu sinni fjallaði Lea María einnig um að Katrín Jakobsdóttir, fyrrverandi forsætisráðherra, hafi neitaði að taka á móti tíu þúsund undirskriftum sem söfnuðust í gegnum undirskriftasöfnun á Ísland.is, þar sem þess var krafist að Ísland styddi kæru Suður-Afríku gegn Ísrael fyrir Alþjóðadómstólnum. Þá sagði Lea María einnig að utanríkisráðherra á þeim tíma, Bjarni Benediktsson, hafi neitað að veita undirskriftalistanum móttöku. Undirskriftalistinn hefur því enn ekki verið afhentur.
Í lok fundarins dönsuðu fundargestir saman svokallaðan Dabke-dans sem er palestínskur þjóðdans.