Alþjóðlegur aðgerðadagur. Laugardaginn 10. október

Alþjóðlegt bandalag fyrir Palestínu (Global Alliance for Palestine) hefur boðað til alþjóðlegs aðgerðadags laugardaginn 10. október. Þann dag munu hundruðir samtaka sem einblína á frelsisbaráttu Palestínu, grasrótarhreyfingar, stúdenta- og verkalýðsfélög víða um heim taka höndum saman í aðgerðum fyrir frjálsri Palestínu. Markmiðið er að rjúfa þögnina um áframhaldandi þjóðarmorð gegn Palestínumönnum og þrýsta á stjórnvöld um raunverulegar aðgerðir með samræmdum aðgerðum um allan heim.
Á Íslandi munum við safnast saman á Hlemmi klukkan 13:00 og ganga kröfugöngu á samstöðufund á Austurvelli.

Ríkisstjórn Íslands var nýlega meðal 12 ríkja sem sendu frá sér yfirlýsingu um fyrirhugaðar aðgerðir gagnvart viðskiptum með vörur frá ólöglegum landtökubyggðum Ísraela á hernumdum svæðum Palestínu.
Í yfirlýsingunni stendur þó ekki hvað Ísland raunverulega hyggst gera. Ekkert hefur komið fram um hvaða aðgerða íslensk stjórnvöld ætla að grípa til gagnvart Ísrael. Þann 10. október krefjumst við þess að íslensk stjórnvöld láti verkin tala. Alþjóðlegur þrýstingur almennings verður að skila sér í raunverulegum aðgerðum ríkisstjórna heimsins gegn hernámi, landráni og þeim stjórnmálasamböndum viðskiptatengslum sem viðhalda þeim.

Aðgerðadagurinn á sér stað á mikilvægum tímamótum, þar sem pólitísk þögn ríkir í skugga þjóðarmorðs Ísraels á Gaza sem hófst af fullum þunga fyrir þremur árum síðan.
Síðan þá hafa samkvæmt opinberum tölum hafa að minnsta kosti 73.000 Palestínumenn verið drepnir, þar af yfir 18.000 börn, og um 70% allra mannvirkja og bygginga á Gaza hafa skemmst eða verið lögð í rúst. Þessar opinberu tölur eru varfærnislegt lágmark og mat sérfræðinga bendir til að raunverulegur fjöldi látinna sé töluvert hærri.
Árásir og eyðilegging Ísraels einskorðast ekki við Gaza. Ofbeldi og landrán landræningja á hernumdum svæðum Palestínu eykst stöðugt. Á meðan ríkisstjórnir heimsins senda frá sér óljósar yfirlýsingar fela börn Vesturbakkanum sig fyrir áhlaupum landræningja í hnipri á bakvið rafmagns turna. Þetta ofbeldi nýtur fulls stuðnings Ísraelsríkis. Afskiptaleysi og stuðningur vestrænna ríkja við Ísrael skapar skilyrði fyrir þjóðarmorðinu, landráninu og hernáminu í heild sinni.
Stuðningur almennings við réttindi Palestínumanna er í sögulegum hæðum víða um heim síðan þjóðarmorðið hófst af fullum þunga haustið 2023. Þrátt fyrir þetta allt hefur aðgerðaleysi stjórnmálafólks og blekkingin um vopnahlé gert það að verkum að hörmungarástand viðhelst á Gaza og Vesturbakkanum án raunverulegra afskipta alþjóðasamfélagsins.

Um Alþjóðabandalagið fyrir Palestínu:
Alþjóðlegt bandalag fyrir Palestínu (Global Alliance for Palestine, GAFP) er alþjóðlegt bandalag sem stjórnað er af framkvæmdanefnd sem meðal annars er skipuð palestínska lækninum Dr. Mustafa Barghouti, breska þingmanninum Jeremy Corbyn, gríska prófessornum Yanis Varoufakis og ítalska þingmanninum Angelo Bonelli. Bandalagið sameinar Palestínu-og friðarhreyfingar, verkalýðsfélög, frjáls félagasamtök og önnur samtök víðsvegar um heiminn með það að markmiði að styrkja meðvitund almennings um Palestínu, krefja stjórnvöld um pólitíska ábyrgð, standa vörð um alþjóðalög og styðja réttindi, reisn og frelsi palestínsku þjóðarinnar.

Scroll to Top