Everest & Esjan !

Samstöðuganga á Esjuna hvern miðvikudag og laugarrdag með Rising Dreams göngu Mostafa Salameh upp á topp Everest í þágu barna og ungmenna á Gaza!

Mostafa Salameh er glaðlyndur baráttumaður. Hann er jafnframt fyrsti Palestínumaðurinn til að komast á topp hæsta fjalls í heimi, Everest!

Mostafa er fæddur í flóttamannabúðunum sem foreldrar hans flúðu til frá Palestínu árið 1948. Hann hefur með eftirtektarverðum hætti náð að láta drauma sína rætast. Einn draumurinn var að ljúka Explorers Grand Slam sem felur í sér að klífa og komast á topp hæsta fjalls hverrar heimsálfu, alls sjö fjöll, og skíðað þveran Norðurpólinn og Suðurpólinn! Honum tókst það, auk þess sem hann fór á skíðum þvert yfir Grænland! Hann er einn þeirra 20 sem hafa náð þeim árangri að ljúka Explorers Grand Slam en meðal þeirra sem hefur tekist þetta þrekvirki er íslenski fjallgöngugarpurinn Haraldur Örn Ólafsson.

Mostafa er maður sem stekkur á tækifærin og gefst ekki upp. Hann komst ekki upp á topp Everest fyrr en 2008 eftir að hafa reynt fyrst 2005 og aftur 2007. Hann er líka maður sem klifrar ekki eingöngu upp á fjallstinda út af persónulegum metnaði og til að slá persónuleg met. Þvert á móti notar hann tækifærið til að láta gott af sér leiða og hefur safnað fé til margskonar góðra málefna sem hann hefur fengið viðurkenningar fyrir.

Núna er markmiðið að beina sjónum alheimsins að Gaza og létta undir með fólkinu sem býr þar við hörmulegar aðstæður með söfnun í sjóð á vegum Al-Khair Foundation.

Hann lagði af stað upp á topp Everest í byrjun apríl með bréf frá börnum og ungmennum á Gaza þar sem þau deila vonum sínum og draumum. Mostafa stefnir að því að komast upp á toppinn í byrjun júní og þá mun flugdreki sem hann er með í fórum sínum fara á flug sem tákn frelsis Palestínu.

Söfnun til stuðnings börnum og ungmennum á Gaza

Fyrir utan það að minna fólk á hörmungaraðstæðurnar í Gaza þá er tilgangurinn með göngunni að safna áheitum fyrir söfnun Al-Khair Foundation eins og fyrr segir. Markmiðið er að safna 10 milljónum bandaríkjadala sem fer allt til þess að kaupa helstu nauðsynjar sem fólk þarf á að halda til að lifa af: fæði, klæði, drykkjarhæft vatn, almennilega hreinlætisaðstöðu, lyf og húsaskjól sem heldur vatni, vindi og meindýrum frá. Staðan er ekki þannig í dag. Þvert á móti. Börn og fullorðnir eru bitin af rottum og öðrum meindýrum sem ásamt skorti á drykkjarvatni og hreinlætisaðstöðu veldur vannæringu, húð- og niðurgangssjúkdómum og fleiri kvillum. Það ríkir algert neyðarástand á Gaza.

Til að minna á aðstæðurnar á Gaza og bjóða fólki að leggja sitt af mörkum til markmiða Rising Dreams göngunnar og söfnunarinnar þá mun félagið Ísland-Palestína vera með samstöðugöngu tvisvar í viku á Esjuna upp að steini.

Gengið verður hvern miðvikudag og laugardag þangað til Mostafa nær á toppinn!

Safnast verður saman við rætur Esju miðvikudag kl. 17:00 og laugardag kl. 10:00. Fólk getur skráð sig fyrirfram á Facebook viðburð sem gerðar verða fyrir allar göngurnar eða bara mætt.

Öll geta tekið þátt og fari á sínum hraða. Þegar við komum upp að steini, tökum við upp palestínska fánann og jafnvel flugdreka og sendum kveðju til Mostafa!

Hérna getur þú fylgst með Rising Dreams göngu Mostafa upp á topp Everest https://www.instagram.com/mostafasalameh/ og hér þar sem þú finnur líka upplýsingar um drauma barna og ungmenna á Gaza: https://www.instagram.com/risingdreamsmission/

Þegar þú póstar e-u á samfélagsmiðla og sendir Mostafa kveðju, endilega nota hashtag göngunnar: #jointheclimb

Hérna getur þú lagt af mörkum til Rising Dreams fjársöfnunarinnar: https://risingdreams.alkhair.org/

Scroll to Top